|
|
|
|
|
mbl, 21.5.2011 |
Baldur Arnarson |
|
Konzert, Reykjavik, "Harpa" Concert Hall, 21. Mai 2011 |
|
Konurnar tóku andköf
|
|
Jonas Kaufmann, tenór frá München, uppskar dynjandi lófaklapp eftir tónleika
sína međ Sinfóníuhljómsveit Íslands í Hörpunni í kvöld. Svo vel kunnu
áhorfendur ađ meta sönginn ađ Kaufmann var fjórum sinnum klappađur upp.
Mátti heyra konur taka andköf af hrifningu á miđsvölum Eldborgar.
Eftir ađ formlegri dagskrá lauk var Kaufmann tvívegis klappađur fram og tók
hann ţá fyrsta aukalagiđ. Var ţetta endurtekiđ ţrisvar ţannig ađ alls tók
ţéttskipađur salurinn átta sinnum undir međ lófaklappi og bravóhrópum, ađ
viđbćttu lófataki fyrr í sýningunni.
Međal aukalaga var E lucevan le
stelle úr óperunni Tosca og mátti heyra áhorfendur komast viđ á međan
flutningnum stóđ, svo djúpt söng tenórinn sig inn í hjörtu viđstaddra.
Kaufmann er hér gestur Listahátíđar í Reykjavík en um hann er skrifađ í
sýningarskrá ađ ţar fari tenór sem „talinn [sé] einn af mikilvćgustu
listamönnum samtímans.“
„Á ţessu leikári hefur hann komiđ fram í
Covent Garden og í Berlín sem Maurizio í Adriana Lecouvreur á móti Angelu
Gheorghiu, í Carmen og í nýju uppfćrslunni á Fidelio eftir Beethoven í
München, í Ríkisóperunni í Vín í Werther og í La Scala í Tosca.“
Ţá
er vikiđ nokkrum orđum ađ menntun Kaufmann en ţar segir ađ hann hafi lokiđ
söngnámi hjá bandaríska baritónsöngvaranum Michael Rhodes. Óperuferill hans
hafi síđan hafist í Saarbrücken.
Má til gamans benda áhugafólki um
söng á ţessa upptöku af söng Kaufmanns á aríunni E lucevan le stelle í
München.
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|
|